STÆRÐARTÖFLUR
Ekki vera í þykkum klæðnaði þegar mælt er.
Þegar valið er á milli stærða er byrjað að miða við lengd á baki, sjá mynd.
Baklengdin þrengir valið niður í tvær stærðir. Þá er farið eftir málum á bringu, mjöðmum o.s.frv.
95.000 kr.
HELITE öryggisvestin veita eina bestu vörn gegn meiðslum, sem völ er á fyrir hestamenn. Vestið hefur innbyggða loftpúða og vegur einungis 600 gr. Knapinn finnur lítið sem ekkert fyrir vestinu og það hefur engin áhrif á samband knapa og hests. Vestin eru vatnsheld og teygjanleg, þau gefa vel eftir en halda lögun sinni eftir að vestið hefur blásið upp. Vestin henta öllum kynjum og stærðum og koma einnig í barnastærð (börn yfir 35 kg.) Skoðið endilega stærðartöfluna hér neðar á síðunni.
Það má klæðast vestinu einu og sér utanklæða eða renna vestinu inn í samþykktan Helite fatnað. Vestið hentar ekki undir annan klæðnað. Börn þurfa að hafa náð 35 kg. til að mega nota vestið. Vestið er selt tilbúið til notkunar og kemur með einu gashylki, taumi frá vesti í hnakk, skiptilykli og handbók.
SJÓVÁ lækkar verðið á öryggisvestunum góðu og býður viðskiptavinum í Stofni 20% afslátt af öllum Helite öryggisvestum frá brokk.is. Nú býðst viðskiptavinum Sjóvár öryggisvestin á 76.000 kr. Almennt verð er 95.000 kr. Skráðu þig inn á „mitt Sjóvá“ til að finna kóðann sem veitir 20% afslátt.
Það er velkomið að máta vestið hjá okkur. Við erum í Spretti, Heimsenda 14. Hafðu samband í síma 7801881 til að panta mátun. Frí heimsending ef verslað er fyrir 15.000 kr.
Ekki vera í þykkum klæðnaði þegar mælt er.
Þegar valið er á milli stærða er byrjað að miða við lengd á baki, sjá mynd.
Baklengdin þrengir valið niður í tvær stærðir. Þá er farið eftir málum á bringu, mjöðmum o.s.frv.
CE VOTTUN: Helite öryggisvestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur og eru með CE vottun frá ALIENOR rannsóknarstofunni sem er óháð stofnun á vegum Evrópusambandsins og sérhæfir sig í að rannsaka öryggisbúnað fyrir hestamenn (PPE).
ÁBYRGÐ: Öryggisvestunum fylgir lágmarks tveggja ára ábyrgð.Ef þú skráir vestið innan þriggja mánaða frá kaupum þá eykst ábyrgðin um tvö ár og verður að fjögurra ára ábyrgð. Til að skrá vestið í fjögurra ára ábyrgð smelltu HÉR